Óhætt er að fullyrða að jólaverslunin í tískuhúsunum í París er ekki alveg eins og venjulega í ár frekar en verslunin almennt í vetur síðan fjármálakreppan hóf að ríða húsum. Sumir eiga ekki við lausafjárvanda að stríða og láta sér ekki muna um að skreppa til Parísar og kaupa kjóla fyrir nokkrar milljónir króna. Til dæmis hef ég til sölu kjóla um þessar mundir á um þrjú til níuþúsund evrur sem er álíka mikið og ódýrir bílar kosta hér. En það er af sem áður var og sífellt fleiri sem velta vöngum yfir verðinu áður en út í slík kjólaævintýri er farið og nú spyrja svartklæddu konurnar frá austurlöndum hvort þær geti fengið afslátt og taka fram vasatölvur. Rússarnir eru sömuleiðis heldur færri en oft áður þó suma dagana bjargi þeir búðunum frá hinu skammarlega núlli, þegar ekkert selst heilan dag og andlegt heilsa starfsfólksins er í hættu.
Frakkar eru frekar daufir í bragði um þessar mundir og helst að almenningur muni gleðja þá yngstu um þessi jól, meðal annars með því að sleppa þeim fullorðnu. Aðrir leita í ódýrari merki sem oft geta verið þægileg leið til að gleðja þá nánustu án þess að tæma algjörlega peningaveskið.
Á þessum árstíma er það Siglingarlínan svokallaða (croisière) sem í tískuhúsum boðar vorið líkt og sumartísku um hávetur, í upphafi ætluð þeim sem fóru í skemmtisiglingar yfir veturinn. Viðskiptavinirnir eru hins vegar frekar uppteknari af einkaútsölum sem standa yfir og eru reyndar kolólöglegar. Þá bjóða tískuhúsin viðskiptavinum sínum að versla á útsöluverði án undan öðrum en útsölur hefjast snemma í janúar. Þessar einkaútsölur hafa reyndar aldrei byrjað eins snemma því fjármálakreppann barði allharkalega að dyrum þegar að vetrartískan átti einmitt að seljast sem best. Þess vegna sefur hún værum svefni baksviðs í tískuhúsunum og í geymslum stórverslanna og bíður útsöluveislunnar sem reyndar verður kannski ekki nein veisla þetta árið, svo lítill er áhuga viðskiptavina.
Svo til að kóróna allt saman í þessari viku fannst sprengjuefni í einu af stóru magasínunum í París, Printemps Haussmann (á hæðinni þar sem ég vinn) sem varð til þess að stórversluninni var lokað í nokkra tíma á þriðjudag og varð fyrir vikið uppspretta að ótta við hryðjuverk í miðri jólaversluninni. Jólin 2008 verða því ekki kölluð kaupmannajól hér í París frekar en víða annars staðar. Ekki er bjartara framundan þar sem sérfræðingar spá samdrætti í lúxusgeiranum á nýju ári, í fyrsta skipti í ára raðir.
Ég óska lesendum og landsmönnum öllum gleði og friðar á jólum.
| Novembre 2009 | ||||||||||
| L | M | M | J | V | S | D | ||||
| 1 | ||||||||||
| 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | ||||
| 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | ||||
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | ||||
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | ||||
| 30 | ||||||||||
|
||||||||||
Athugasemdir