Lundi 22 décembre 2008

Á tískuvikunni í október var fjörtíu ára hönnunarafmæli Soniu Rykiel minnst. Af sama tilefni opnaði á dögunum sýning sem fer yfir árin fjörtíu í nytjalistasafninu, Musée des Arts décoratifs sem er rétt við Louvre-safnið. Sonia Rykiel sem er af fínum gyðingaættum og átti að verða ,,literer” dama, giftast og eiga börn, viltist fyrir tilviljun inn í tískuheiminn. Í heimsókn á vinnustað manns síns sem var í fataframleiðslu spurði hún hvort hægt væri að útbúa peysu eins og hún vildi fyrir sig. Soniu eins og svo mörgum öðrum konum fannst margt í þessum heimi ekki henta sér sérstaklega vel. Þess vegna fór hún að hanna fyrst fyrir aðra og opnaði svo sína fyrstu búð í maí 1968, í miðjum ólátunum í París. Hún skapaði sér strax nafn með prjónaefnum og seinna með öðrum efnum en nær alltaf mjúkum eins og jersey til dæmis sem varð ómissandi í fínum jogginggöllum á tíunda áratugnum. Þægilegur klæðnaður sem hentaði vel konum af ýmsum stærðum og gerðum, ,,sport-chic” útlitið varð til. Rykiel aflaði prjónaefninu hvort sem er í peysum, pilsum eða kjólum viðurkenningar í tískuheiminum og í dag er ekkert tískuhús sem ekki blandar saman við aðra tísku prjónaefnum.

Breiðar og litríkar rendur eru sömuleiðis einkennandi fyrir hönnun Rykiel og hafa fylgt henni áratugum saman. Rendurnar voru og eru hennar vörumerki, eins auðþekkjanlegar og hjá Paul Smith.

Þegar Sonia gekk með sitt fyrsta barn tók hún upp á því að hanna fyrir ófrískar konur, enn og aftur vegna þess að fatnaðurinn sem fyrir var á markaðnum hentaði að hennar mati ekki ófrískum konum. Þetta er lykilatriði hjá Rykiel, hún hefur alla tíð hannað fyrir konur það sem hún telur henta þeim og hefur oftar en ekki hitt naglann á höfuðið í stað þess að hanna það sem tískuheimurinn telur konum trú um að þær eigi að nota. Nokkuð sem fylgir tískuheimi aðallega stjórnað af körlum sem framleiða föt meira eða minna hönnuðum af körlum.

Sonia Rykiel hefur alla tíð umgengist listamenn, rithöfunda og sálfræðinga sem oft hafa spurt hvað það eigi að þýða að hanna föt með götum eða að snúa saumunum út. Hún var reyndar langt á undan sinni samtíð með þessum tilraunum. Sumir segja reyndar að þannig nálgist Sonia Rykiel fagurbókmenntirnar sem henni voru ætlaðar ungri, hönnunin er hennar skrift. Eins og Svava Jakobsdóttir skrifaði í frægri grein þar sem hún talar um nauðsyn þess að velta við steinunum og skoða undir. Sonia Rykiel snýr við flíkunum og sínar það sem er á hinni hliðinni, röngunni, þorir að kíkja undir steinanna.

Par Bergþór Bjarnason
Ecrire un commentaire - Voir les commentaires - Recommander
Retour à l'accueil

Bergþór Bjarnason

  • bergthor-bjarnason
  • : Blogg milli tveggja landa, dalegt líf í París og stjórnmál. Pistlahöfundur á Rás 2 og tískupenni Fréttablaðsins sem og sölumaður hjá Valentino.

Miðlar

Flokkar

Athugasemdir

Dagal

Novembre 2009
L M M J V S D
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            
<< < > >>

Leita

Créer un blog sur over-blog.com - Contact - C.G.U. - Rémunération en droits d'auteur - Signaler un abus