Samedi 15 novembre 2008

Þegar ég var lítill skemmtu Pála frænka í Reykjavík og Vala systir sér af því að hringja í Lífstykkjabúðina og spyrja: ,,Eigið þið gervinýru”, skelltu svo á og hlógu. Lífstykkjabúðin er ein elsta verslun á Laugarveginum og ein af fáum trygg við íslenskt nafn. Margir muna sjálfsagt eftir að hafa séð hjá ömmu sinni eða mömmu, allt eftir aldri viðkomandi, sérstakar nærbuxur sem ég held að ég fari rétt með að heiti magabelti. Sjálfsagt eru þau enn til sölu í Lífstykkjabúðinni og kannski víðar. Í síðustu viku töluðum við um tísku fyrir þéttar konur en í framhaldi af því er rétt að minnast á nýjustu afurð undirfataframleiðendana sem er einmitt magabeltið sem lifir nú öðru lífi. Konur á vesturlöndum (menn reyndar líka) hafa bætt á sig kílóum á síðustu áratugum og þar af leiðandi farið upp um eina eða tvær stærðir í fatnaði. Magabeltinu er eins og áður ætlað að fela fellingarnar og slétta. Þau eru nú þróaðra og þægilegra en áður var meðal annars vegna þess að ný efni eru notuð. Punkturinn yfir i-ið er að flottari merki blanda sér nú í þessa framleiðslu sem á ekki lengur að vera púkaleg heldur sexý. Til dæmis eru notuð teyjuefni sem eru mismunandi teygjanlegt á mismunandi stöðum eftir þörfum. Flíkin er því ekki óþarflega stíf þar sem það er óþarfi. Þetta gerir til dæmis Aubade sem er frækt undirfatamerki í Frakklandi og meðal annars þekkt fyrir ögrandi auglýsingar sem hafa vakið mikla athygli og deilur. Aubade hefur framleitt nærbuxur sem heita ,,litli svindlarinn” og eru víðar að framan en með g-streng að aftan og undir rasskinnunum eru teyjborðar eiga að lyfta þeim upp. Hjá Triumph eru það litlir silkihnútar og og gylltir þræðir sem eiga að poppa upp magabeltið og gefa því nýtísku yfirbragð. Hönnunarvinnan virðist virka því svo aðeins eitt dæmi sé tekið eru magabelti nú sex prósent af heildarframleiðslunni hjá Aubabe. Enginn tilviljun að undirfataframleiðendur séu áhugasamir.

Önnur framleiðsla sem sömuleiðis á að móta líkamann á þægilegri hátt en áður eru sérstakar sokkabuxur sem einnig eru úr nýjum efnum sem henta betur en áður hafa verið notuð. Lausnin er þráður sem er blandað saman úr polyamide og teyju sem gefur gljáandi yfirbragð, teygjanleika og þægindi en umleið mótar lærin. En ein af ástæðum þessarar endurkomu magabeltanna fyrir utan aukna líkamsþyngd er einnig hversu mikið er um prjónakjóla og önnur mjúk efni í tískunni þar sem minnsta felling sést. Fyrir karlmenn er hins vegar engin lausn til að fela magann en það er önnur saga.

 

Par Bergþór Bjarnason
Ecrire un commentaire - Voir les commentaires - Recommander
Retour à l'accueil

Bergþór Bjarnason

  • bergthor-bjarnason
  • : Blogg milli tveggja landa, dalegt líf í París og stjórnmál. Pistlahöfundur á Rás 2 og tískupenni Fréttablaðsins sem og sölumaður hjá Valentino.

Miðlar

Flokkar

Athugasemdir

Dagal

Novembre 2009
L M M J V S D
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            
<< < > >>

Leita

Créer un blog sur over-blog.com - Contact - C.G.U. - Rémunération en droits d'auteur - Signaler un abus