Tískuvikunni sem lauk í París á dögunum verður minnst fyrir átakaleysi og það einkennilega andrúmsloft sem ríkti meðan á tískusýningunum stóð vegna fjármálakreppunnar. Ekki auðvelt að gleyma sér í lúxus og kampavíni meðan að bankar heims riða til falls.
Tískuvikan var þó ekki átakalaus með öllu því strax að lokinni sýningu tískuhúss Valentino var tilkynnt um brotthvarf hönnuðarins Alessöndru Faccinetti. Hún tók við af meistaranum gamla, Valentino Caravani, fyrir aðeins ellefu mánuðum en hann dró sig í hlé á árinu eftir fjörtíu og fimm ára starf. Þetta var aðeins þriðja tískusýning hennar, sú fyrsta í mars, hátískan í júlí og svo nú. Svo virðist sem að ráðning Alessöndru Faccinetti hafi verið mikil mistök þrátt fyrir að hún hafi reynt að gera nokkra andlistlyftingu á stíl Valentinos. Hún ætlaði sér að bjóða upp á meiri breydd í fatnaði svo sem í dagklæðnaði en Valentino var einna þekktastur fyrir glæsilega kvöldkjóla. Á sama tíma virðast kvöldkjólarnir hafa gleymst og eldri konur sem kannski höfðu einmitt ríflegri efnahagslega getu til að versla hjá tískuhúsinu og ganga í Valentino-kjólum hurfu á braut. Því tapaði tískuhúsið fleiri viðskiptavinum en áttu að vinnast með nýja stílum. Einnig segja heimildir innanhúss hjá Valentino að Alessandra Faccinetti hafi átt í miklum erfiðleikum með að vinna með samtarfsfólki sínu. Það eru Maria Grazia Chiuri og Pier Paolo Piccioli sem taka nú við hönnuninni en þau hafa í tíu ár starfað hjá Valentino í fylgihlutahönnun svo sem töskum skóm og fleiru. Fylgihlutir hafa einmitt verið í mikilli sókn hjá Valentino sem skiptir gríðalegu máli í dag í tískunni því mörg tískuhús byggja hagnað sinn á fylgihlutum. Fyrir vikið var tískupressan ekki mjög vingjarnleg í umfjöllun sinni um sýningu Valentino en lofaði mikið hönnun Alber Elbaz hjá Lanvin þrátt fyrir að verslunareigendur og innkaupastjóra segi svo á bak við tjöldin að fatnaður Lanvin sem sýndur var sé ónothæfur þrátt fyrir að tískublaðamenn tali um næstum fullkomna sýningu í blöðunum. En svona virkar tískuheimurinn, annað hvort ertu ,,inn” eða ,,out” sem ekki alltaf er í samræmi við listrænasköpun eða hæfileika. Þannig dettur ekki nokkrum manni í hug að gagnrýna Karl Lagerfeld og segja að hann hjakki í sama farinu hjá Chanel og að það sé langt síðan að hann hafi gert nokkuð annað en endurvinna gamlar lummur Coco. Flestir tískublaðamenn eru sömuleiðis með afslátt í tískuhúsunum ef þeir eru ekki hreinlega hlaðnir gjöfum. Þannig tryggja rótgróin tískuhús góða umfjöllun.
| Novembre 2009 | ||||||||||
| L | M | M | J | V | S | D | ||||
| 1 | ||||||||||
| 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | ||||
| 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | ||||
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | ||||
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | ||||
| 30 | ||||||||||
|
||||||||||