Vikan hér í landi hófst á þjóðhátíðardeginum sem að vanda var lítið ætlaður almenningi. Það er svo sérstakt að þessi dagur er að mestu markaður af hersýningu á Champs-Elysée breiðgötunni. Ekki neitt sérstakt fyrir fjölskyldur eins og við þekkjum heima á Íslandi. Aðeins flugeldasýningar og í París voru það sömuleiðis tónleikar á Champs de Mars stutt frá Eiffel-turninum sem glöddu almenning. Svo auðvitað hin frægu slökkviliðsmannaböll sem ekki eru ætluð þeim sem eru undir lögaldri.
Annars er ekki hægt að segja að það ríki gúrkutíð hér í fjölmiðlum þó það sé nú oft hlutskipti þeirra í júlílok og ágúst. Hvert stórmálið hefur rekið annað þessa vikuna. Til dæmis ný lög um atvinnulausa sem eiga að þrengja kost þeirra. Einnig samþykkti Öldungadeildin nýtt stjórnarskrárfrumvarp sem nú á að koma fyrir sameinaðar deildir þings á mánudag í Versölum. Ekki er þó neitt víst um að breytingarnar verði samþykktar því þrjá/fimmtuhluta sameinaðra þingdeilda þarf til samþykktar og Sósíalistar ætla sér að fella breytingarnar og stjórnarflokkurinn er ekki einhuga í málinu. Þetta yrði gríðarlegur pólitískur ósigur forsetans sem fylgdi í kjölfar skipbrots Lissabonssáttmálans sem Írar felldu 12. júní og í raun það eina sem eftir er af hans stóru málum sem gætu orðið að veruleika ef frá er talið Miðjarðarhafssambandið sem eftir fund leiðtoga Evrópusambandsríkjanna og arabalanda á sunnudagin var gæti verið í burðarliðnum.
Helstu breytingar á stjórnarskránni draga úr völdum forsætisráðherrans og auka völd forsetans sem meðal annars getur flutt ávarp á þingi sem er mikið kappsmál Frakklandsforseta.
Reyndar bíður erfiður fundur forsetans á Írlandi þar sem að Írar eru ekki par kátir eftir yfirlýsingar hans um að þeir verði að kjósa aftur. Engum datt í hug að segja við Frakka 2005 eftir að Stjórnarskrá Evrópusambandsins var fellt hér í landi að Frakkar ættu bara að kjósa aftur! Og hví skyldu Írar eiga að fá aðra meðferð einungis vegna þess að þeir eru færri?
Svo er það franska hjólreiðakeppnin sem snýst nú aðallega um lyfjanotkun, þriðji keppandinn féll á lyfjaprófi í gær og fjölmiðlar búast við þeim fjórða í dag. Líklega verður það ljóst í kvöldfréttum sjónvarps. Fjör í frans.
| Novembre 2009 | ||||||||||
| L | M | M | J | V | S | D | ||||
| 1 | ||||||||||
| 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | ||||
| 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | ||||
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | ||||
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | ||||
| 30 | ||||||||||
|
||||||||||