Dimanche 15 juin 2008 7 15 /06 /2008 20:20

 

Í gegnum tíðina hafa nokkrir tískuhönnuðir eins og Jean-Paul Gaultier og Agnès b. svo dæmi séu tekin reynt að koma pilsum í fataskáp karlamanna með frekar litlum árangri hingað til. Ef frá eru taldir nokkrir Skotar sem sjást á götum heimsborga sérstaklega þegar að landsleikir í íþróttum eiga sér stað sjást karlar frekar lítið í pilsum þó einum og einum bregði við.

Ef litið er á sögu karlmannafatnaðar er þó ekki svo langt síðan að menn gengu um bæði í pilsum eða einhvers konar kjólum og enn í dag er þessi klæðnaður víða notaður til dæmis í austurlöndum nær og fjær. Í Asíu heitir flíkin Sarong og Djellaba í Afríku. Í raun er það aðeins á vesturlöndum sem menn hafa snúið baki við þessari klæðnaðarhefð og því álitið skrýtið fyrir karlmann að ganga í pilsi þar sem að við teljum okkur hér einfær um að setja heiminum öllum reglur um allt milli himins og jarðar.

Nokkrir sérvitringar eru þó til sem vilja breyta þessari hefð og hafa stofnað samtök karlamanna sem vilja ganga í pilsum og það í nafni þæginda, frjálsræðis og jafnréttis kynjanna. Hvers vegna skildu líka konur einar hafa rétt á þessum þægilega klæðnaði til dæmis á sumrin? Það sérst vel á bermúdatískunni hjá karlmönnum síðan í fyrra að þeim fellur vel að stytta faldinn fyrir sumarið.

Það skal tekið fram til þess að enginn misskilji tilgang þessara manna að hér er ekki um að ræða einhvers konar hneigð til klæðskipta eða þá einhverra kynferðislegra fantasíu og flestir eru þessir menn giftir. Samtökin heita einfaldlega menn í pilsum (Hommes en jupe) og eru ársgömul. Meðlimir samtakanna segja þetta einfaldlega vera spurningu um jafnrétti, tala um kynjamisrétti og að hafa fullt vald yfir eigin líkama. Minnir óneitanlega á femínisma fyrri ára. Kannski að þessi breyting myndi auka virðingu fyrir konum sem kjósa að nota pils og kjóla í daglegu lífi en mæta alls kyns kynferðislegu áreiti. Stærsta vandamálið er hins vegar að ekki er auðvelt að finna karlmannapils, fataframleiðendur eru hræddir um ímynd sína og því er úrvalið takmarkað þrátt fyrir nokkra  markaðsmöguleika, helst að finna megi pils á internetinu.

Og til að svara þeim sem spyrja fyrst af öllum hvað mennirnir nota undir pilsin eru það einfaldlega nærbuxur, langt frá þeirri grillu að karlar séu auðvitað berir undir pilsinu eins og Skotar. Sumir gagna svo langt að nota sokkabuxur sem þurfa að vera þykkar til að fela hárin á leggjunum en sokkaframleiðandinn Gerbe hefur í um eitt og hálft ár framleitt herrasokkabuxur. Hér eru tvær heimasíður sem hægt er að kíkja á til fróðleiks

www.jupeskirt.eu  og www.i-hej.com  

Par Bergthor Bjarnason
Ecrire un commentaire - Voir les 2 commentaires - Recommander
Retour à l'accueil

Commentaires

the website is now http://jupe-skirt.info
Commentaire n°1 posté par jeromehej le 28/06/2009 à 18h01
Y a-t-il possibilité d'avoir la traduction en français de votre page du site pour pouvoir la mettre en lien sur le site des Hommes en Jupe, HeJ, la jupe au masculin?
Merci
Jean Appriou
Commentaire n°2 posté par Jean Appriou le 07/10/2009 à 15h26

Bergþór Bjarnason

  • bergthor-bjarnason
  • : Blogg milli tveggja landa, dalegt líf í París og stjórnmál. Pistlahöfundur á Rás 2 og tískupenni Fréttablaðsins sem og sölumaður hjá Valentino.

Miðlar

Flokkar

Athugasemdir

Dagal

Décembre 2009
L M M J V S D
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
<< < > >>

Leita

Créer un blog sur over-blog.com - Contact - C.G.U. - Rémunération en droits d'auteur - Signaler un abus