Fyrsta greinin mín í Fréttablaðið á heimilissíðunum 23. apríl 2008
Evrópubúar leita logandi ljósi af nýjum leiðum til að spara orku en einn stærsti hluti orkuneyslu í dag er tengdur húsnæði. Um 43% af orku er notuð í byggingum jafnt opinberum sem á heimilum
samkvæmt frönsku húsnæðismálastofnuninni. Í löndum þar sem að stærsti hluti orkunnar er mengandi er húsnæði því mikill skaðvaldur þegar umhverfi er annars vegar. Í Frakklandi er samkvæmt
opinberum upplýsingum aðeins 2% orku hrein. Umhverfisvernd er núorðið mjög vel séð og því er mikil gróska í öllu sem viðkemur ,,grænum húsum”. Ekki má heldur gleyma að á opinberri
umhverfisráðsefnu í París s.l. haust var ákveðið að minnka orkunotkun til húsnæðis um 12% á fimm árum. Hækkun olíuverðs hefur breytir einnig umhverfishegðun almennings sem vill spara peninga en
umleið minnkar mengun.
Margar lausnir eru í boði til að minnka orkuneyslu í eldra húsnæði. Betri einagrun, gluggar með þreföldu gleri og fleira mætti nefna. Í Frakklandi er boðinn skattaafsláttur fyrir þá sem taka lán til að endurbæta hús sín, til dæmis til að setja upp spegla á þök til að virkja sólarorkuna. Í dag er töluvert um að húseigendafélög í fjölbýlishúsum taki sig saman og setji slíkan búnað á þök. Orkan er svo notuð til að hita húsnæðið sem og vatnið. Í sólríkari héruðum er framleiðslan það mikil að umfram rafmagn er selt til dreifingar og á 10-15 árum er búnaðurinn búinn að borga sig og farinn að skila hagnaði.
Í nýbyggingum eru margar lausnir í boði í dag. Áður fyrr voru veggir illa eða jafnvel alls ekki einangraðir og ekki þekkist að segja einangrunarplast í veggi. Steinveggir eru því oft einangraðir innan frá eftir byggingu, til dæmis með glerull en nú er farið að nota endurvinnslupappír, lambsull eða jafnvel efnisafganga úr textíliðnaði í einangrun. Stundum eru veggir einangraðir utanfrá og þá með plötum úr trjákurli. Svo eru það einingaveggir úr steypu framleiddir með einangrandi loftbólum. Timurhús eru í mikilli sókn bæði vegna þess að þau eru úr nátturlegum efnum en einnig vegna þess hve viður heldur vel í sér hita.
Stofum er snúið í suður og herbergjum í austur eða suð-austur. Þetta er gert til að minnka rafmangsnotkun til lýsingar og nýta hitann frá sólinni til hitunar. Svo eru þeir sem velja nýja kanadíska leið sem felst í því að leiða loft tvo metra niður í jörðina undir húsinu í fimmtíu metra löngu röri sem tryggir stöðugt tólf gráðu heitt loft innandyra.
Þar sem að umhverfi leyfir utandyra er upplagt að auka einangrun með gróðurvegg gerðum úr runnum og plöntum sem einangra vegginn en umleið vinnur gróðurinn koltvísýring úr loftinu.
kveðja, Ásdís.