Tískupistill úr Fréttablaðinu í dag
Ein mikilvægasta hliðargrein tískuheimsins er snyrtivörugeirinn og skiptir mikilu máli fyrir afkomu tískuhúsanna. Ekki er milvægið minna fyrir þá sem eingöngu framleiða snyrtivörur. En samkeppin hörð og nauðsynlegt að bjóða reglulega upp á nýjungar til að halda velli. Um nokkurt skeið hafa rannsóknarstofur snyrtivöruframleiðanda verið uppteknar af því að leita að efnnum til að bylta fyrri framleiðslu á snyrtivörum sem eiga að minnka hrukkumyndun og tryggja eilífa æsku. Framleiðendur leita að mólekúlum morgundagsins sem eiga það sammerkt að gjörbreyta áhrifum andlitskrema. Þau eiga til dæmis að örfa endurnýjun húðfruma sem minnkar með aldrinum eða auka starfsemi þeirra og þannig margfalda áhrif kremanna. Fyrir vikið verða kraftaverkakremin sífellt dýrari en það sem meira er þau finna alltaf kaupendur. Það nýjasta frá Shiseido, Bio performance er gott dæmi um þessa nýju framleiðslu. Kremið kostar litar 300 evrur (um 35.000 krónur) og lofar barnshúð á fimmtán dögum. Annað er Crème suprême jeunesse frá Estée Lauder á 230 evrur sem inniheldur nýja blöndu, ,,Resvératrol”. Hjá Dior heitir undraefnið TP-Vytil sem á að verja eiginleika húðarinnar til að endurnýja sig. Svo eru það þau sem eiga að stinna húðina og enn önnur sem á að nota til að fylla upp í djúpar hrukkur. Um rannsóknir á árangri er hins vegar ekkert upp gefið.
En snyrtivöruframleiðendur vinna ekki aðeins að því að tryggja neytendum eilífa æsku því með rétta sumarklæðnaðinum þarf réttu litina í förðun og til að vera í takti við tískuna eru litirnir auðvitað bleikir en sömuleiðis er blátt aðalnýjungin í litum sumarsins. Hver veit þið hafið kannski geymt gamlan bláan augnskugga inni í baðherbergisskáp sem gæti verið sá eini rétti? Blæbrygðin eru mörg, málm-, nætur-, pastel- eða turkisblátt og ekki verra ef að dálítið af glimmeri er blandað saman við. En það er ekki bara augnskugginn, maskarinn og varaliturinn sem getur verið blár. Neglurnar og jafnvel ilmvatnið er blátt eins hið nýja bláa One Summer frá Calvin Klein fyrir dömur og herra með myntu og kardimommu.
Ef ykkur líkar ekki blátt á neglurnar þá býður Dior upp á tuttugu og einn bleikan lit í naglalakki fyrir sumarið svo hver og ein ætti að geta verið glöð með sitt.
Í farða er enn mikil áhersla lögð á að hann sé aðeins til að fullkomna fallega húð og á að vera næstum ósýnilegur.
Aucun commentaire pour cet article