Vendredi 11 avril 2008

 

Tískupistill úr Fréttablaðinu 10. apríl 2008

Í töskum og skóm er ekki um að ræða neinar byltingar sumarið 2008. Fylgihlutir fylgja þeirri þróun sem hefur verið í gangi síðustu árstíðir. Töskur eru enn í ofurstærð og sandalar fyrir þetta sumar eru með þykkum botni hvort sem um er að ræða fyllta hæla, svokallaða platform-hæla eða venjulega hæla. Oft eru sandalarnir úr strigaefni. Sólarnir eru áfram þykkir að framan, jafnvel tveggja til þriggja sentimetra þykkir en það er mun þægilegra þegar hælar eru háir. Það er sömuleiðis staðreynd, hælar eru ekkert að lækka. Reyndar má aðeins sjá skó og sandala sem eru fínlegri og með mjórri hælum en síðustu misseri en skórnir endurspegla þá tískulínur sem eru stílhreinni. Oft eru hælarnir þykku úr viði og passa þá vel við klæðnaðinn í anda áttunda áratugarins eins og hjá Soniu Rykiel. Í sumar verða sömuleiðis áberandi mjög nýstárlegir hælar með mismunandi lagi til dæmis þríhyrntir ( Sergio Rossi, Fendi) eða ferkantaðir eins og finna má hjá Marc Jacobs. Í einni útgáfu hans er hællinn aðeins á framhlutanum, líkt og enginn hæll sé á afturhluta skóna. Minna er af lökkuðu leðri en áður þó það sé ekki alveg horfið bæði í skóm og töskum.

Töskurnar eru eins og síðustu misseri stórar og ekki er verra ef þær eru úr dýrum skinnum til dæmis krókódíl eins og í hvítu og svörtu töskunum hjá Dior. Guess veðjar á strút en Gucci og Tods á snák. Yves Saint Laurent heldur sig enn við metsölutösku sína Muse en hún hefur verið á toppnum í nokkur misseri.

Eins og skórnir endurspegla handtöskurnar sterka liti sumarsins. Til dæmis Sólgult eins og sést í striga Louis Vuitton þetta sumarið. Skærgrænt er ríkjandi sem og blátt og rautt. Fúshíableikt er einn aðalliturinn í sumar en einnig má sjá margar útgáfur af bleiku, allt frá fölbleiku yfir í sterkan bleikan lit. Allir fylgihlutirnir eru til í bleiku, skór, töskur, belti, hálsfestar og svo mætti áfram telja. Málmlitir eru á útleið þó enn megi finna gyllt hjá YSL og fleirum.

Skartgripir eru áberandi og í yfirstærð. Ekki fer milli mála að andi sjöunda og áttunda áratugarins svífur yfir vötnum. Skartgripir eru ekki lengur úr eðalmálmum eða dýrum steinum heldur plexi-harðplasti sem er aðalefnið. YSL býður upp á margar mismunandi hálsfestar úr plexi og gylltum málmi eða risastórar sjörnur sömuleiðis úr plexi. Það þýðir þó ekki að þessir skartgripir séu á spottprís. Til dæmis er ein stjörnuhálsfesti YSL á 2560 evrur. Plexíið er einnig í aðalhlutverki hjá Christian Lacroix sem hannar stór armbönd með semelíusteinum í mismundandi litum. Fylgihlutir eins og fatnaður lofa því litríku og lifandi sumri.

 

par Bergthor Bjarnason
ajouter un commentaire commentaires (0)    recommander
Voir tous les articles

Présentation

  • bergthor-bjarnason
  • : Notes sur la politique et la vie parisienne / Blogg milli tveggja landa, dalegt líf í París og stjórnmál

Agenda

Calendrier

Juillet 2008
L M M J V S D
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
<< < > >>

Recherche

définition blog sur over-blog.com - Contact - C.G.U. - Rémunération en droits d'auteur avec TF1 Network - Signaler un abus