Tískupistill úr Fréttablaðinu á sumardaginn fyrsta 2008
Herrarnir verða betur klæddir en nokkru sinni í sumar. Lykilorðið er
Slim-tískan er á hraðri útleið og í sumar má jafnvel sjá útvíðar gallabuxur að nýju en þær hafa verið algjörlega bannaðar um nokkurra ára skeið eða frá því að Heidi Slimane fyrrum herrahönnuður Dior kom renglutískunni á kortið með fyrirsætum sem minntu helst á karlkyns átröskunarsjúklinga. Herraímyndin 2008 er allt önnur og nú á karlmaðurinn að vera með form. Mjóu svörtu bindin sjást minna og nú eru bindin bæði breiðari og litríkari en nokkru sinni fyrr. Hjá Lanvin sést skemmtileg blanda af klassískum og frjálslegum klæðnaði líkt og síðustu misseri til dæmis eru klassískir jakkar notaðir við buxur úr jogging-efni og prjónabindi.
Fyrir yngri herra og þá sem vilja vera frjálslegir í klæðnaði er auðvitað margt í boði. Litirnir eru þó sterkir til dæmis í skyrtum hvort sem þær eru með stuttum eða síðum ermum og gjarnan með stórum blómum eða munstri. Einnig eru pólópolir í óteljandi útgáfum jafnt frá Lacoste eða Mangó sem nú býður upp á herralínu, svo aðeins tvö dæmi séu tekin.
Herrahandtöskur hafa algjörlega fest sig í sessi síðan að þær komust í tísku fyrir nokkrum árum. Auðvitað eru tískuhúsin hæst ánægð með þess nýju ,,nauðsynjavöru” fyrir herrana sem hækkar sölutölur og hagnað. Öll fínu tískuhúsin sem og önnur merki senda nú ekki frá sér tískulínu öðruvísi en að hafa ýmsa fylgihluti með í línunni til að draga að fleiri viðskiptavini og selja hverjum og einum fleira en eina flík og þannig hækka ,,meðal innkaupakörfu” hvers viðskiptavinar sem er eitt af ,,boðorðunum tíu” hjá kaupmönnum. Hjá herrum eru lakkskór en í fullu gildiþó þeir sjáist minna í sumar hjá dömunum og reyndar er hippatíska ´68 áranna, blóm og friður nokkuð á skjön við herratískuna í sumar sem er miklu fágaðri.
«élégance», karlmaðurinn á að vera fágaður og stílhreinn. Jakkafötin eru ómissandi og eiga helst að vera hvít eins og hjá Hubo Boss, Paul Smith eða Yohji Yamamoto. Sama á við um ódýrari merki eins og Zara og H & M. Kannski ekki það besta fyrir íslensk rykmystur! Við jakkafötin eru notaðar þunnar fallegar peysur eða bolir og skyrtur fyrir þá sem vilja vera fínni. Enn eru bermúdabuxurnar flík sumarsins líkt og í fyrra og við þær eru notaðir skór, bæði mokkasíur eða sandalar úr leðri en ekki þvengskór úr plasti. Til þess að gera þær fínni eru gjarnan notuð falleg belti og skyrtur með. Bermúdabuxurnar eru að sjálfsögðu hvítar eins og jakkafötin en einnig í litum eða munstraðar eins og hjá H & M sem í samstarfi við finnska merkið Marimekko hefur hannað sumarlínu fyrir H & M bæði fyrir dömur og herra.